Klukkan
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 29 mars
29.10.2009 17:05:38 / Harpa Þöll

Fatigue


1 Hafragrautsskál...

8 Kaffibollar...

2 Oreokex...

2 Burn dósir...

2 Fræðslur...

1 Fyrirlestur...

2 Heimildaritgerðir...

20 Álfabönd...

3 Hlátursköst...

1 Kvíðakast...

385 Klósettferðir...

Óteljanleg heimildaleit

Death Cab for Cutie


https://www.dankennedy.com/blog/wp-content/uploads/business-anxiety.jpg

= Fimmtudagur

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2009 16:50:19 / Harpa Þöll

Ár til stefnu!



Ljúfa líf!


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 11:50:25 / Harpa Þöll

1 spurning..





Á maður að hrökkva eða stökkva?






» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 23:17:13 / Harpa Þöll

2008


Veit ekki alveg hvurnig stendur á því að þessi síða sé ennþá til.. Stofnaði hana á sínum tíma þegar ég bjó úti á Spáni með fléttur, attitude og spænska málheltni (sem mun að öllum líkindum aldrei hverfa, guðsélof.. gott að leyfa fólki að hlægja)...

Gæti verið að hún sé að bíða bjartari tíma.. að hennar tími muni koma von bráðar, bráðar en við gerum okkur öllum grein fyrir.. að hún muni einn bjartan haustdaginn koma með eh bráðnauðsynlegt og ískyggilega fyndið hingað inn á?
Segja ykkur frá misförum eigandans og annarra, illsku heimsins, appelsínuhúð á fræga og mjóa fólkinu, lélegum kennurum Háskólans, misheppnuðum stjórnmálamönnum, nýjasta æfingaræðinu, gengi krónunnar, góðum bananamöffins uppskriftum eða jafnvel bara frá því hvernig gengur að pimpa upp Aron Pálma??
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir eigandans að loka henni poppar hún ávallt upp aftur.. þrautsegjan alveg til staðar.. ætli þetta eigi að tákna eh?  Er hún að reyna að segja mér að segja ykkur eh? 

Gæti verið.. 

 

 

SL370703-2.jpg picture by harpatholl



Hefur þú eh að segja ?   

Ég bíð spennt...


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 23:02:14 / Harpa Þöll

Like sister like sister??

Það er greinilegt að þetta gengur í erfðir...

Byrjum alltaf rosa sakleysislega og dannaðar að neyta matarins og hverjum er ekki sama um smá hor? :

Svo færist pínku ákafi í leikinn.. græðgin tekur við og við missum hreinlega stjórn á okkur...:

Svo þegar allir skreppa frá í SMÁ stund.. MISSIR maður sig bara í gleðinni!! :

Svona er þetta þegar maður veit hvað maður vill :)

Annars var ég ekki svona lítil og nett á sínum tíma.. Var HNÖTTÓTT reyndar! Foreldrar mínir sáu ekki mótast fyrir andliti fyrr en ég varð 2ja ára.

Nú vitiði hvaðan dekkjaframleiðundir fengu hugdettuna um útlitið á Michellin manninum! 8)

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 13:49:58 / Harpa Þöll

"Barnin alltaf ríða pabba sín í íslensku.."

 

Þremur árum seinna er maður staddur í lífinu... Furðulegt hvernig þetta virkar :)

Byrja aftur á næsta ári þegar ég verð vonandi stödd útí heimi með hjúkrunarmerkið á lofti ásamt 9 öðrum kandidötum að reyna að gera góða hluti..

 


» 5 hafa sagt sína skoðun


Harpa Þöll Gísladóttir
24 ára málhaltur, orðheppinn, sjónskekktur, hnyttinn og lífsglaður hjúkrunarfræðinemi með laus mjaðmaliðbönd bilateralt og hófafar á hnénu.
Dagsetning
6. september 2010
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 46383